Sameiginleg uppskeruhátíð hestamannafélagsins Skagfirðings og HSS var haldin í Ljósheimum sl. föstudagskvöld. Veitt voru verðlaun í hinum ýmsu flokkum.
Gísli Einarsson sló á létta strengi og Þorvaldur Kristjánsson fór yfir árangur kynbótahrossa.
Veglegar veitingar voru í boði og áttu Skagfirskir hestamenn góða kvöldstund.
Ekki verður á neinn hallað þótt sérstaklega sé minnst á Þórarinn Eymundsson en hann sópaði að sér verðlaunum þetta kvöld.
Hann var m.a. valinn knapi ársins í Skagafirði.
Verðlaunahafar kvöldsins hjá Skagfirðing.
Barnaflokkur – Júlía Kristín Pálsdóttir
Unglingaflokkur – Freydís Þóra Bergsdóttir
Ungmennaflokkur – Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Íþróttaknapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Gæðingaknapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Kynbótaknapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Knapi ársins – Þórarinn Eymundsson
Titillinn Hrossaræktarbú ársins í Skagafirði hlutu Þúfur.
Skagfirðingur óskar sínum félagsmönnum innilega til hamingju með góðan árangur á árinu.