Hestamannafélagið Skagfirðingur á tvo fulltrúa í Landsliðshópi Íslands fyrir árið 2024
Þórgunnur Þórarinsdóttir, knapi ársins í ungmennaflokki hjá Skagfirðingi er í hópi U-21 landsliðsins og Daníel Gunnarsson, skeið -og knapi ársins hjá Skagfirðingi er í hópi A-landsliðs Íslands!
Stjórn Skagfirðings óskar knöpum innilega til hamingju með sæti sín í landsliðshóp Íslands í hestaíþróttum og horfir með eftirvæntingu fram á spennandi tímabil.