Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar LH var samþykkt að Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2021 verði haldið á Hólum í Hjaltadal dagana 1. til 4. júlí.
Á Landþingi 2020 voru gerðar allnokkrar breytingar á reglugerð um Íslandsmót sem unnar voru af sérstökum starfshópi sem stjórn LH skipaði í þeim tilgangi að efla alla umgjörð um mótið og festa dagsetningar og dagskrá mótsins.
Helstu breytingar eru:
- Rétt til þátttöku hafa efstu pör á stöðulista í hverri grein og gilda einkunnir pars frá núverandi og fyrra keppnistímabili. Stöðulisti er tekinn út 5 dögum fyrir mót.
- Fjöldi þátttakenda í fullorðinsflokki er 30 í hringvallagreinum, gæðingaskeiði og 100 m. skeiði og 20 í 150 og 250 m. skeiði.
- Fjöldi þátttakenda í ungmennaflokki er 20 í hringvallagreinum, 15 í gæðingaskeiði og 100 m. skeiði og 6 í 150 og 250 m. skeiði.
- Flokkar fullorðinna og ungmenna ríða forkeppni saman en úrslit eru í hvorum flokki fyrir sig.
- Dagskrá mótsins skal vera í föstum skorðum til hagræðingar fyrir áhorfendur og fjölmiðla.
- Dagsetning mótsins er á heimsmeistaramótsárum fyrsta helgin í júlí en á landsmótsárum í annari viku eftir landsmót.
Með þessum breytingum er stigið skref í átt til umgjarðar og framkvæmdar sem þekkist á heimsmeistaramótum.
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar heima að Hólum en á síðunni visitskagafjordur.is er hægt að sjá allt varðandi gistingu, afþreyingu og veitingar í Skagafirði.