Screenshot 2020-10-29 at 13.33.15

Vátryggingamiðlunin Tryggja býður í samstarfi við Lloyd‘s tryggingu fyrir börn yngri en 22 ára í leik og starfi. Tryggingin gildir allan sólarhringinn á æfingum, keppnum og frítíma hvar sem er í heiminum. Foreldrar barna í íþróttum sem kaupa þessa tryggingu geta tilgreint íþróttafélagið sem barnið stundar sína íþrótt hjá og þá fær félagið kr. 1.000 af hverri seldri áskrift.

Æskulýðsdeild Skagfirðings hefur ákveðið að bjóða sínum iðkendum og forráðamönnum þeirra að skoða þetta tilboð og hvetjum við alla til að fara vel yfir tryggingar sínar og nota þetta tækifæri til að tryggja sig enn frekar.
Tryggja mun sjá um alla úrvinnslu og standa skil á greiðslum til félaganna.

Um vernda barnatryggingu: Vernda barnatrygging er ódýr sjúkra- og slysatrygging – 1990 kr. á mánuði.

Innifalið í tryggingunni er:
Styrkur til íþróttafélags.
Ekkert heilsufarsmat.
Gildir út um allan heim.
Dagpeningar til foreldra við umönnun.
Hæstu bætur við örorku.

Tryggingin gildir:
við æfingar, í keppni, í frítíma, í leik og starfi.

Smelltu á meðfylgjandi hlekk til að kaupa tryggingu:https://www.tryggja.is/vernda-barnatryggingar/sport

„Tryggjum börnin okkar sérstaklega, það verðmætasta sem við eigum, alltaf, alls staðar í leik og starfi”.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Kjartansson oli@tryggja.is.

Deila færslu