Reglur Landssambands hestamannafélaga um sóttvarnir á æfingum og mótum vegna COVID-19 hafa verið samþykktar af sóttvarnaryfirvöldum.
Þar með er heimilt að halda mót í hestaíþróttum ef þess er gætt að reglunum sé fylgt í þaula.
Við biðjum mótshaldara og keppendur um að kynna sér reglurnar vel.
Vakin er athygli á því að áhorfendabann er á öllum mótum í hestaíþróttum án undantekninga.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofa LH: lh@lhhestar.is / 514 4030