Aðalfundur Hestamannafélagsins Skagfirðings verður haldinn í Tjarnarbæ, 5. mars n.k. kl. 20.00.
Dagskrá aðalfundar er:
- Fundarsetning.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
- Gjaldkeri kynnir reikninga félagsins og leggur fram til samþykktar.
- Lagabreytingar
- Kosning aðalstjórnar
- Kosning í nefndir
- Ákvörðun félagsgjalds.
- Önnur mál
Félagsmenn eru vinsamlega beðnir um að senda tilllögur að lagabreytingum og/eða tilllögur um stjórnar- og nefndarmenn á: hafsteinsstadir@gmail.com
Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á framtíðarstarf félagsins.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.